SÍMASÖGUR
Viltu verða betri í að búa til efni á snjallsímanum þínum?

SÍMASÖGUR
Símasögur eru 2×3ja tíma vinnusmiðjur á netinu þar sem þátttakendur læra annars vegar að nýta sér Filmic Pro appið í tökur og hins vegar Kinemaster appið til að klippa efni á snjallsímanum sínum. Farið er í grundvallarþætti í kvikmyndagerð á snjallsímum þar með talið tökuramma, hljóðupptökur og lýsingu. Þátttakendur hafa aðgang að Whatsapp stuðningshópi í 30 daga eftir að vinnusmiðjum lýkur.
Námskeiðið fer fram á ensku.
Verð 45.000 krónur.
Ath. að mörg stéttarfélög veita styrk fyrir hluta af námskeiðsgjaldi

MEISTARAMESSA Á BIFRÖST
Við bjóðum upp á Meistaramessu að Bifröst í Borgarfirði í efnisgerð á snjallsímum.
Vinnusmiðjan er ætluð þeim sem þegar hafa klárað Símasögunámskeið hjá okkur.
Einungis 12 þátttakendur komast að. Þrír kennarar eru á staðnum þau Jane Mote, Josh Kershaw og Connor Whitfield ásamt verkefnastjórum.
Unnið er frá kl. 9 á morgnana til 22 á kvöldin. Farið verður ítarlega í stafræna frásagnargerð. Myndbönd verða gerð á staðnum undir handleiðslu kennara og kafað dýpra í alla þá þætti sem farið var í á Símasögum.
Markmiðið er að auka hæfni og fagmennsku í efnisgerð á farsíma bæði tæknilega og frásagnarlega.
Einn undirbúningstími fer fram á netinu áður og stendur yfir frá kl. 10:00 – 12:00 á tilteknum degi.
Verð er 138.000 krónur. Innifalin er gisting í eina nótt í einstaklingsherbergi og 6 máltíðir. Hægt er að bæta við gistinóttum fyrir 7.500 króna aukagjald á nótt.
Vinsamlegast hafið samband við okkur varðandi næstu dagsetningar.

KENNARAR
Jane Mote leiðir námskeiðið. Hún hefur unnið m.a. fyrir BBC Worldwide, Discovery International, Turner Broadcast og STV. Undanfarin ár hefur hún snúið sér að því að þjálfa fólk í efnisframleiðslu.
Joshua Kershaw er kvikmyndagerðarmaður með mikla reynslu af störfum í tónlistargeiranum. Hann hefur gott auga fyrir skapandi nálgun í tökum.
Connor Whitfield er reynslumikill klippari. Hann hefur góðan skilning á öllum hliðum efnisgerðar hafandi unnið bæði við upptökur og klipp.
